Côtes du Rhône
Vieilles Vignes
Vínþrúgur
60% Grenache & 40% Syrah
Jarðvegur og umhverfi
Ræktað á svæðunum Pouzilhac (Gard) og Bédarrides (Vaucluse). Jarðvegur svæðanna einkennist af sandi, vikri og ávölum steinum (galets roulés). Vínviðurinn er u.þ.b. 60 ára gamall.
Víngerð
Einn þriðji af uppskerunni er geymdur í 225 lítra viðartunnum í um 10 mánuði.
Bragðlýsing
Eftir umhellingu þá opnast þetta rúbínrauða vín með fíngerðum nótum af hindberjum og sólberjum. Ávöxturinn magnast og er bæði ríkur og bragðgóður í bland við fíngert sýrustig.
Hentar vel með grilluðu rauðu kjöti, villibráð og ostum.
Châteauneuf-du-Pape
Vínþrúgur
90% Grenache & 10% Syrah
Jarðvegur og umhverfi
Ræktað víðsvegar innan Châteauneuf-du-Pape upprunasvæðisins. Þar nýtur vínviðurinn mismunandi jarðvegs en svæðið er þekkt fyrir sand, leir og ávala steina.
Hámarksnýting er 3500 lítrar á hektara.
Víngerð
Vínið fær að eldast í viðartunnum í 10 til 12 mánuði.
Bragðlýsing
Bak við rúbínrauða litinn liggur klassískur ilmur af þroskuðum rauðum ávöxtum og kryddi. Vínið leikur við bragðskynið með löngum nótum af sykruðum hindberjum ásamt því að vera kraftmikið en í jafnvægi. Ríkt eftirbragð sem verðlaunar þá þolinmóðu.
Hentar vel með lambi, nauti, hörðum ostum og villibráð.
Les Terrasses
Châteauneuf-du-Pape
Vínþrúgur
100% Grenache
Jarðvegur og umhverfi
Þetta frábæra vín er unnið úr vínvið sem er yfir 90 ára gamall í Escondules Hauts í suðurhluta svæðisins. Það nýtur meðal annars góðs af ávölu steinunum.
Hámarksnýting er 3500 lítrar á hektara
Víngerð
Vínið fær að eldast í 400 lítra eikartunnum í 12-18 mánuði.
Bragðlýsing
Rúbínrauði liturinn nýtur sín, fíngerð lykt af sykruðum rauðum ávöxtum. Finna má eikarkeim eftir dvöl vínsins í eikartunnunum. Mjúkt bragð með bráðnandi tannínum lýkur með fallega krydduðu eftirbragði.
Hentar vel með lambi, nauti og villibráð.
Hægt að njóta strax eða geyma í allt að 10 ár.
Les Petits Pieds d’Armand
Châteauneuf-du-Pape
Vínþrúgur
100% ofþroskuð Grenache (over-ripened)
Jarðvegur og umhverfi
Þetta magnaða vín er ræktað á La Crau svæðinu í sandgerðum jarðvegi úr vínvið sem var plantað í lok 19. aldar og því yfir 120 ára.
Hámarksnýting er 1000-2000 lítrar á hektara
Víngerð
Eftir að berin hafa fengið að ofþroskast þá fær vínið að eldast í tunnum og 600 lítra eikartunnum í 12-18 mánuði.
Bragðlýsing
Vottur af kirsuberjum, fíkjum og plómum er fylgt eftir með mjúkri áferð af þessu kröftuga og þétta víni. Kryddilmur fylgir löngu og fáguðu eftirbragði.
Hentar vel með lambi, hörðum ostum og villibráð.
Hægt að njóta strax eða geyma í allt að 15 ár.
Clos saint pierre
Le Clos Saint Pierre
Châteauneuf-du-Pape
Vínþrúgur
50% Grenache, 25% Syrah & 25% Mourvèdre
Jarðvegur og umhverfi
Berin eru sótt á fjóra staði á ekrunum. Þessi lífrænt ræktuðu svæði njóta mismunandi jarðvegs sbr. ávölum steinum, sand og leir kalksteins.
Vínviðurinn er yfir 100 ára gamall og einungis 2000 flöskur eru framleiddar í hverjum árgangi.
Víngerð
Vínið fær að eldast í viðartunnum í 12 til 14 mánuði.
Bragðlýsing
Þetta framúrskarandi vín með sinn djúpa rúbín rauða lit gefur sér sterka lykt af rauðum ávöxtum sem eykst með viðartónum. Á tungunni ásamt rauðu og svörtu ávöxtunum er dálítill lakkrís til að setja punktinn yfir i-ið í bragðinu.
Hentar vel með lambi, hörðum ostum og villibráð.
Hægt að njóta strax eða geyma í allt að 15 ár
Au-Delà
Châteauneuf-du-Pape
Vínþrúgur
100% Grenache
Jarðvegur og umhverfi
Grenache þrúgurnar koma frá þremur lífrænt ræktuðum svæðum og eru þrúgurnar sóttar á elstu vínviðina fyrst.
Vínviðurinn er yfir 100 ára gamall og einungis 1600 flöskur eru framleiddar í hverjum árgangi.
Víngerð
Vínið fær að eldast í viðartunnum í u.þ.b. 18 mánuði.
Bragðlýsing
Þetta er framúrskarandi vín með dökkrauðan plómulit og ilmandi ávexti. Í bragðinu þá kemur gamli vínviðurinn sterkur inn með örlítilli sætu sem haldið er í jafnvægi með þroskuðum og góðum tannínum.
Hentar vel með lambi, hörðum ostum og villibráð.
Hægt að njóta strax eða geyma í allt að 15 ár.